TILKYNNING |
---|
Notið aðeins Cat -íblöndunarefni fyrir kælivökva með lengri líftíma (ELC Extender) með Cat ELC (kælivökva með lengri líftíma) . EKKI skal nota hefðbundið íblöndunarefni fyrir kælivökva (SCA) með Cat ELC. Með því að blanda Cat ELC saman við hefðbundna kælivökva og/eða hefðbundinn SCA er dregið úr líftíma Cat ELC. |
Einungis skal skoða kælikerfið þegar drepið hefur verið á aflvélinni og hún hefur kólnað niður.
Persónuleg meiðsl geta hlotist af heirum kælivökva, gufu og alkalí. Við vinnuhita er kælivatnið heitt og undir þrýstingi. Vatnskassinn og alla leiðslur til hitara eða til vélarinnar hafa að geyma heitan kælivökva eða gufu. Öll snerting getur valdið alvarlegum bruna. Fjarlægið þrýtstingstappa kælikerfis varlega til að losa um þrýsting þegar vélin hefur verið stöðvuð og tappinn er nægilega kaldur til að taka á honum með berum höndum. Reynið ekki að herða samtengingar á hosum þegar kælivökvi er heitur, hosa getur losnað og valdið bruna. Íbótarefni í kælivatni innihalda alkalíefni. Varist snertingu við húð og augu. |
TILKYNNING |
---|
Gæta verður þess að tryggja að vökvar séu geymdir meðan á framkvæmd eftirlits, viðhalds, prófunar, stillingar og viðgerðar á vörunni stendur. Vertu undir það búin(n) að safna vökvanum í hentug ílát áður en einhver hólf eru opnuð eða einhver íhlutur sem inniheldur vökva er tekinn sundur. Í Special Publication, NENG2500, "Cat Dealer Service Tool Catalog - Sérriti fyrir þjónustuverkfæravörulista söluaðila Cat" eða Special Publication, PECJ0003, "Cat Shop Supplies and Tools Catalog - Sérriti um birgðir í Cat-verslunum og verkfæravörulista" eru leiðbeiningar varðandi verkfæri og áhöld sem henta til að safna og geyma vökva úr búnaði frá Cat. Fargaðu öllum vökvum í samræmi við staðarreglugerðir og tilskipanir. |
- Losið áfyllingarlok kælikerfisins varlega til að losa um þrýsting. Fjarlægið áfyllingarlok kælikerfisins.
- Ef þörf er á skal tappa nægum kælivökva af kælikerfinu til að hella Cat ELC Extender í.
- Hellið Cat ELC Extender í samræmi við rúmtak kælikerfisins. Frekari upplýsingar er að finna í þessari notkunar- og viðhaldshandbók, "Rúmtak áfyllingar" eða þessari notkunar- og viðhaldshandbók, "Ráðleggingar um notkun vökva".
- Hreinsið áfyllingarloka kælikerfisins. Skoðið pakkningarnar á áfyllingarloki kælikerfisins. Skiptið um áfyllingarlok kælikerfisins ef pakkningarnar hafa skemmst. Setjið áfyllingarlokann aftur á kælikerfið.