AthugiĆ° Fylgið ávallt lögum og reglum á hverjum stað.
Niðurrifsvélar eru hannaðar til að rífa niður með því að ýta, draga eða brjóta. Niðurrif fer fram með því að mölva eða skera í sundur byggingar og/eða önnur mannvirki og einstaka hluta þeirra og/eða með því að skilja sundur brakið sem til fellur.
Ef vinnuvélin er notuð sem niðurrifsvél innan svæðis sem fellur undir Evróputilskipun 2006/42/EB þarf vélin að vera búin:
- Veltigrind
- BLCV/SLCV
- Framhlið/framhlíf
- Hlíf fyrir undirvagn/mótor/snúningslið
- Gluggahlíf fyrir framrúðu/þakglugga
Við niðurrif getur brak kastast frá. Gangið úr skugga um að ekkert starfsfólk sé á svæðinu umhverfis vinnuvélina þar sem hætta er á að brak kastist frá.
Við niðurrif getur þyrlast upp ryk sem getur verið heilsuspillandi. Ef ryk þyrlast upp við notkun vinnuvélarinnar skal gera viðeigandi öryggisráðstafanir eða tryggja að nægileg loftræsting sé fyrir hendi til að draga úr hættu.