TILKYNNING |
---|
Gæta verður þess að tryggja að vökvar séu geymdir meðan á framkvæmd eftirlits, viðhalds, prófunar, stillingar og viðgerðar á vörunni stendur. Vertu undir það búin(n) að safna vökvanum í hentug ílát áður en einhver hólf eru opnuð eða einhver íhlutur sem inniheldur vökva er tekinn sundur. Í Special Publication, PERJ1017, "Dealer Service Tool Catalog" (sérrit fyrir vörulista yfir þjónustuverkfæri frá söluaðila) eru leiðbeiningar um verkfæri og áhöld sem henta til að safna og geyma vökva úr búnaði frá Cat®. Fargaðu öllum vökvum í samræmi við staðarreglugerðir og tilskipanir. |
- Notið vélina í nokkrar mínútur áður en olíusýni er tekið. Hreyfið vökvastjórnbúnaðinn til þess að blanda glussann vel og fá nákvæmara sýni.
- Opnið vélarhlífina.
Show/hide table
Skýringarmynd 1 g03849067 - S·O·S-sýnatökustaðurinn fyrir áætlaða olíusýnatöku er vinstra megin í vinnuvélinni hjá vatnskassanum. Notið sýnatökuloka á leiðslu til að taka glussasýni.
- Lokið vélarhlífinni og festið hana.
Tilvísun: Nánari upplýsingar er að finna í Special Publication, SEBU6250, "Caterpillar Machine Fluids Recommendations", "S·O·S Oil Analysis" – sérriti með ráðleggingum um notkun vökva í Caterpillar-vinnuvélum og S·O·S olíugreiningu og Special Publication, PEHP6001, "How To Take A Good Oil Sample" – sérriti um hvernig á að taka gott olíusýni.