Stillið alla spegla eins og lýst er í Notkunar og viðhaldshandbók. Vanhöld á að gera þetta getur valdið persónulegum meiðslum eða dauða. |
Að renna til og detta getur valdið persónulegum meiðslum. Notið aðgangskerfi vélarinnar þegar speglar eru stilltir. Ef ekki er hægt að stilla speglana með því að nota aðgangskerfi vélarinnar, fylgið þá leiðbeiningum sem er að finna í Notkunar og viðhaldshandbók, "Spegill" til að komast að speglunum. |
Athugið Hugsanlega er vélin ekki búin öllum þeim speglum sem lýst er í þessum kafla.
Skýringarmynd 1 | g03848726 |
(1) Baksýnisspegill
(2) Vinstri spegill (ef hann er til staðar) (3) Hægri spegill (ef hann er til staðar) |
Speglar veita aukna yfirsýn í kring um vélina. Gangið úr skugga um að speglar séu í lagi og að þeir séu hreinir. Stillið sætið við byrjun hverrar vinnutarnar og stillið sætið þegar skipt er um ökumann.
Einnig er mælt með góðu skipulagi á vinnusvæði til að draga úr hættu á að útsýni skerðist. Frekari upplýsingar eru í Notkunar- og viðhaldshandbók, "Upplýsingar um skyggni".
Breyttar vélar eða vélar með viðbótarbúnaði geta haft áhrif á útsýni.
- Leggið vinnuvélinni á jafnsléttu.
- Látið verkfærið síga niður á jörðina.
- Stillið vökvakerfislæsingu á LOCKED (LÆST). Nánari upplýsingar um þessa aðgerð er að finna í Notkunar- og viðhaldshandbók, "Stjórntæki".
- Drepið á aflvélinni.
- Stillið baksýnisspegla til að fá útsýni aftur fyrir vinnuvélina allt að
30 m (98 ft) frá afturhornum vélarinnar.
Athugið Hugsanlega þarf að nota verkfæri til að stilla sumar gerðir spegla.
Skýringarmynd 2 | g03848774 |
Ef baksýnisspegill (1) er til staðar skal stilla hann fyrir hámarksútsýni eftir aðstæðum á vinnustað.
Skýringarmynd 3 | g03848801 |
Ef vinstri spegill (2) er til staðar skal stilla hann fyrir hámarksútsýni eftir aðstæðum á vinnustað.
Ef hægri spegill (3) er til staðar, má stilla hann fyrir hámarksútsýni yfir aðstæður á vinnustað.