3306B Industrial Engine Caterpillar


Before Starting Engine

Usage:

3306B 1BM
Framkvæmið nauðsynlegt daglegt viðhald og annað reglulegt viðhald áður en aflvélin er gangsett. Skoðið vélarrýmið. Slík skoðun getur komið í veg fyrir stórvægilegar viðgerðir síðar meir. Sjá notkunar- og viðhaldshandbók, "Viðhaldsáætlun" varðandi frekari upplýsingar.

  • Til að tryggja hámarksendingartíma aflvélarinnar skal skoða hana vandlega áður en hún er gangsett. Leitið eftir eftirfarandi atriðum: olíuleka, kælivökvaleka, lausum boltum og óhreinindum. Fjarlægið rusl og látið framkvæma viðgerðir, ef með þarf.

  • Leitið eftir sprungum og lausum klemmum á slöngum kælikerfisins.

  • Leitið eftir sprungum, sliti eða öðrum skemmdum í riðstraumsrafal og aukadrifreimum.

  • Leitið eftir lausum tengingum og slitnum og trosnuðum vírum í raflögnum.

  • Athugið magn eldsneytis. Tappið vatni af vatnsskiljunni (ef hún er til staðar). Opnið eldsneytisloka.


TILKYNNING

Allir ventlar í bakrás eldsneytiskerfisins verða að vera opnir áður en vélin er gangsett og meðan hún er í gangi til að koma í veg fyrir háan eldsneytisþrýsting. Hár eldsneytisþrýstingur getur sprengt síuhús eða valdið öðrum skemmdum.


Ef aflvélin hefur ekki verið gangsett í nokkrar vikur kann eldsneyti að hafa lekið af eldsneytiskerfinu. Loft kann að hafa komist í síuhúsið. Einnig kann loft að sitja eftir í aflvélinni þegar skipt hefur verið um eldsneytissíur. Við slíkar aðstæður skal forgefa í eldsneytiskerfið. Frekari upplýsingar um forgjöf í eldsneytiskerfið eru í notkunar- og viðhaldshandbókinni, "Eldsneytiskerfi - gangsetning".

------ VIÐVÖRUN! ------

Útblástur frá vélinni inniheldur brunalofttegundir sem geta verið hættulegar heilsu manna. Ræsið og notið vélina ávallt í vel loftræstu rými og, ef í lokuðu rými, leiðið útblásturinn út.


  • Ekki gangsetja aflvélina eða hreyfa við stjórntækjum hennar ef viðvörunarmiði sem segir "DO NOT OPERATE (NOTKUN BÖNNUÐ)" eða svipaðir viðvörunarmiðar eru festir við svissinn eða stjórntækin.

  • Tryggið að öll svæði í kringum hluta sem snúast séu auð.

  • Allar hlífar þurfa að vera á sínum stað. Leitið eftir skemmdum hlífum eða hlífum sem vantar. Gerið við skemmdar hlífar. Skiptið um skemmdar hlífar og/eða hlífar sem vantar.

  • Aftengið þau hleðslutæki rafgeyma sem ekki eru varin gegn mikilli straumnotkun sem myndast þegar rafstartari (ef hann er til staðar) er tengdur. Kannið rafmagnssnúrur og leitið eftir lélegum tengingum og tæringu á rafgeymi.

  • Endurstillið allar stöðvanir eða viðvörunaríhluti.

  • Athugið smurolíuhæð vélar. Haldið olíuhæð á milli "ADD (BÆTA VIÐ)" kvarðans og "FULL (FULLUR)" kvarðans á olíumælinum.

  • Athugið hæð kælivökva. Kannið hæð kælivökva í safngeymi kælivökva (ef til staðar). Gætið þess að magn kælivökva sé við "FULL (FULLUR)" kvarðann í safngeymi kælivökva.

  • Ef aflvélin er ekki búin safngeymi kælivökva skal halda hæð kælivökva innan 13 mm (0.5 inch) frá neðri enda áfyllingarrörsins. Ef aflvélin er búin hæðarglasi skal halda hæð kælivökva við eðlilega hæð í hæðarglasinu.

  • Aðgætið gátljós loftsíunnar (ef til staðar). Framkvæmið viðhald á loftsíunni þegar guli vísirinn fer inn á rauða svæðið eða þegar rauða bullan læsist þar sem hún sést.

  • Gangið úr skugga um að búnaður sem á að keyra hafi verið tekinn úr sambandi. Dragið úr rafmagnshleðslum eða fjarlægið allar rafmagnshleðslur.
Back to top
The names Caterpillar, John Deere, JD, JCB, Hyundai or any other original equipment manufacturers are registered trademarks of the respective original equipment manufacturers. All names, descriptions, numbers and symbols are used for reference purposes only.
CH-Part.com is in no way associated with any of the manufacturers we have listed. All manufacturer's names and descriptions are for reference only.