C18 Industrial Engines Caterpillar


Product Description

Usage:

C18 EJG

Tafla 1
Forskrift C18 aflvélar 
Strokkar og fyrirkomulag þeirra  Sex strokkar í röð 
Borvídd  145 mm (5.7 inch) 
Slaglengd  183 mm (7.2 inch) 
Slagrými  18 L (1098 in3) 
Kveikiröð  1-5-3-6-2-4 
Snúningur (kasthjólshluti)  Rangsælis 

Rafeindastýrðar aflvélar sem þessi handbók fjallar um eru búnar eftirfarandi eiginleikum: beinni innspýtingu eldsneytis, rafrænni innspýtingu einingar með vélrænni færslu, forþjöppu og loftmillikæli.

Stýrikerfi rafeindastýrðu aflvélarinnar býður upp á eftirfarandi eiginleika: rafræna stjórnun, sjálfvirka stillingu hlutfalls lofts og eldsneytis, jöfnun togaukningar, tímastillingu innspýtingar og kerfisgreiningar.

Rafstýrður gangráður stjórnar úttaki sambyggðu eldsneytislokanna til að viðhalda æskilegum snúningshraða aflvélarinnar. Á meðal eiginleika gangráðsins forritanlegur hægur lausagangur og 20 sn./mín. til 200 sn./mín. yfirkeyrsla gangráðs.

Rafstýrðir sambyggðir eldsneytislokarnir með vélrænni færslu mynda mjög mikinn innspýtingarþrýsting. Eldsneytislokarnir sameina dælingu og rafræna mælingu eldsneytis (lengd og tímastilling) við innspýtingu. Sambyggðu eldsneytislokarnir stýra takmörkun reyks, hvítum reyk og inngjöf aflvélarinnar.

Einn sambyggður eldsneytisloki er við hvern strokk. Hver sambyggður eldsneytisloki mælir eldsneyti. Hver sambyggður eldsneytisloki dælir einnig eldsneyti. Mæling og dæling fara fram undir miklum þrýstingi. Mikill innspýtingarþrýstingur dregur úr eldsneytisnotkun og útblæstri. Notkun þessarar gerðar sambyggðra eldsneytisloka býður upp á heildræna rafræna stjórnun tímastillingar innspýtingar. Tímastilling innspýtingar er mismunandi eftir vinnsluskilyrðum aflvélarinnar. Afköst aflvélarinnar eru fínstillt fyrir eftirfarandi:

  • Gangsetning

  • Útblástur

  • Hávaði

  • Eldsneytisnotkun

Tímastillingunni er náð með nákvæmri stýringu innspýtingarkveikingar. Snúningshraða aflvélar er stjórnað með stillingu á lengd kveikingar. Upplýsingarnar er sendar í stjórntölvuna frá hraða-/tímaskynjara aflvélar. Upplýsingarnar eru notaðar til að greina staðsetningu strokks og snúningshraða aflvélar.

Aflvélarnar eru með innbyggðan greiningarbúnað til að tryggja að allir hlutar þeirra virki og vinni rétt. Greinist frávik í kerfishluta fær stjórnandi vinnuvélarinnar viðvörun um ástandið með GREININGARLJÓSI á stjórnborðinu. Hægt er að nota rafrænt þjónustuverkfæri frá Caterpillar til að lesa talnakóða greiningarblikkkóðans. Greiningarkóðarnir eru þrenns konar: VIRKUR, SKRÁÐUR og TILVIK. Þessi kóðar eru skráðir og vistaðir í stjórntölvunni. Frekari upplýsingar eru í notkunar- og viðhaldshandbók, "Greiningartæki aflvélar".

Kælikerfið samanstendur af eftirfarandi: miðflóttaaflsdælu sem er knúin með tannhjóli, vatnshitastilli, olíukæli og vatnskassa sem inniheldur affallskerfi.

Smurolíunni er dælt með tannhjólaknúinni dælu. Smurolían er kæld og síuð. Hjáveitulokar bjóða upp óheft flæði smurolíu til aflvélarinnar við eftirfarandi kringumstæður: þegar seigjustig olíunnar er mikið og ef olíukælirinn eða olíusían (pappahylki) stíflast.

Eldsneytisnýting, afköst aflvélar og afköst útblástursstjórnbúnaðar eru háð því að farið sé eftir tilmælum um rétta notkun og viðhald, þar með talið notkun ráðlagðs eldsneytis, kælivökva og smurolía.

Eftirmarkaðsvörur og Cat-aflvélar


TILKYNNING

Tveggja míkrona eldsneytissía er áskilin fyrir alla rafræna sambyggða eldsneytisloka frá Caterpillar til þess að hámarka endingu eldsneytiskerfisins og koma í veg fyrir ótímabært slit vegna slípandi agna í eldsneytinu. Eldsneytissíur frá Caterpillar uppfylla þessi skilyrði. Fáið nánari upplýsingar um rétt númer hluta hjá söluaðila Caterpillar .


Notkun tengitækja, aukabúnaðar eða rekstrarvara frá öðrum framleiðendum hefur engin áhrif á ábyrgð Caterpillar.

Hins vegar teljast bilanir sem hljótast af uppsetningu eða notkun tækja, aukabúnaðar eða rekstrarvara frá öðrum framleiðendum EKKI vera ágallar sem ábyrgð Caterpillar tekur til. Af þessum sökum falla slíkir ágallar EKKI undir ábyrgð Caterpillar.

Rafsuða og rafeindastýrðar Cat-aflvélar


TILKYNNING

Styrkur grindarinnar kann að minnka með tímanum og af þeim sökum mæla sumir framleiðendur gegn suðu á grindina eða handriðið. Leitið ráða hjá framleiðanda búnaðarins eða söluaðila Cat þegar kemur að rafsuðu á grind eða handrið.


Réttar aðferðir við rafsuðu eru nauðsynlegar til að koma í veg fyrir skemmdir á rafeindastýringum. Áður en rafsoðið er á ökutæki sem er búið rafeindastýrðri aflvél skal fylgja eftirfarandi varúðarráðstöfunum:

  1. Drepið á vélinni. Snúið svissinum í stöðuna OFF (slökkt).

  2. Ef vinnuvélin er með útsláttarrofa rafgeymis skal slá hann út. Annar skal aftengja mínuskapal "-" rafgeymisins af rafgeymi ökutækisins.


    TILKYNNING

    Ekki jarðtengja rafsuðuvél við rafeindabúnað svo sem rafeindastjórneininguna eða skynjara. Röng tenging getur skaðað legur í aflrás, vökvabúnað, rafeindabúnað og aðra hluti.

    Klemmið jarðtengingarkapal rafsuðuvélarinnar við stykkið sem á að rafsjóða. Komið klemmunni fyrir eins nærri suðustað. Þetta dregur úr hættu á skemmdum.


  3. Klemmið jarðtengingu rafsuðunnar við íhlutinn sem á að sjóða. Hafið klemmuna eins nærri suðustað og kostur er.

  4. Verja skal rafleiðslukerfi gegn óhreinindum og slettum frá rafsuðu. Nota skal rétt verklag við rafsuðu.

Caterpillar Information System:

3600 and C280 Diesel Engine Fluids Recommendations Cold Weather Lubricants
3600 and C280 Diesel Engine Fluids Recommendations Specialty Lubricants
3508B, 3508C, 3512B, 3512C, 3516B and and 3516C Marine Engines Model View Illustrations
CG137-08 and CG137-12 Industrial Engines Gas Pressure - Check and Adjust
CG137-08 and CG137-12 Industrial Engines Inlet Air Is Restricted
CG137-08 and CG137-12 Industrial Engines Exhaust Temperature Is Low
345D, 349D and 349D2 Excavator Machine System Specifications Position Sensor (Stick)
CG137-08 and CG137-12 Industrial Engines Exhaust Temperature Is High
C32 Generator Set Plate Locations and Film Locations
345D, 349D and 349D2 Excavator Machine System Specifications Boom Cylinder Lines
345D, 349D and 349D2 Excavator Machine System Specifications Pilot Lines
PM3516 Power Modules Battery Charger - Check
CG137-08 and CG137-12 Industrial Engines Power Is Low
C18 Industrial Engines Refill Capacities
C15 and C18 Industrial Engines Flywheel Housing
CG137-08 and CG137-12 Industrial Engines Fuel Flow Rate Is Low
349F and 352F Excavators Sound Information and Vibration Information
349F and 352F Excavators Storage Box
C6.6 Industrial Engine Exhaust Cooler (NRS) - Install
C6.6 Industrial Engine Exhaust Cooler (NRS) - Remove
CX28 Transmission For Combat and Tactical Vehicles Transmission ; Transfer Case Electronic Control System Transfer Case Low Range Indicator and Wheel Locks Do Not Operate
C13 and C15 Generator Set Engines Air Inlet and Exhaust System - Inspect
CG137-08 and CG137-12 Industrial Engines Engine Cranks but Does Not Start
C15 and C18 Petroleum Generator Sets Engine Valve Lash - Check
Back to top
The names Caterpillar, John Deere, JD, JCB, Hyundai or any other original equipment manufacturers are registered trademarks of the respective original equipment manufacturers. All names, descriptions, numbers and symbols are used for reference purposes only.
CH-Part.com is in no way associated with any of the manufacturers we have listed. All manufacturer's names and descriptions are for reference only.