Útblástur frá vélinni inniheldur brunalofttegundir sem geta verið hættulegar heilsu manna. Ræsið og notið vélina ávallt í vel loftræstu rými og, ef í lokuðu rými, leiðið útblásturinn út. |
Þegar vélin er í AUTOMATIC (sjálfvirkum) ham, getur vélin farið í gang hvenær sem er. Til að forðast meiðsl á alltaf að halda sig fjarri vélinni þegar hún er í AUTOMATIC (sjálfvirkum) ham. |
Til að kveikja á sjálfvirkri gangsetningu verður EMCP 3 að vera stillt á "SJÁLFSTÝRINGU". Ýtið á hnappinn "AUTO" (sjálfvirkt) til að stilla stjórnborðið á sjálfstýringu. Aflvélin ver sjálfkrafa í gang þegar fjarstýrða gangsetningar-/stöðvunartengið lokast.
TILKYNNING |
---|
Við fyrstu gangsetningu nýrrar eða endurbyggðar vélar, og við gangsetningu vélar sem hefur verið þjónustuð, skal gera ráðstafanir til að bregðast við ef yfirsnúningur á sér stað. Það er hægt að gera með því að loka fyrir loft og/eða eldsneyti til vélarinnar. |
Ekki gangsetja aflvélina eða hreyfa við stjórntækjum hennar ef viðvörunarmiði sem segir "DO NOT OPERATE (NOTKUN BÖNNUÐ)" eða svipaðir viðvörunarmiðar eru festir við svissinn eða stjórntækin.
Tryggið að enginn sé í hættu áður en aflvélin er gangsett og þegar hún er gangsett.
- Framkvæmið það sem lýst er í þessari notkunar- og viðhaldshandbók, "Áður en aflvél er gangsett" (notkunarkafli).
Show/hide table
TILKYNNING Ekki beita startara þegar svinghjólið snýst. Ekki starta vélinni undir álagi.
Ef vélin fer ekki í gang innan 30 sekúndna, sleppið þá gangsetningarrofanum eða hnappnum og bíðið í tvær mínútur til að leyfa startaranum að kólna áður en reynt er að starta aftur.
- Til að gangsetja aflvél með EMCP 3 er ýtt á hnappinn "RUN" (keyra).