Rafstýrt stjórnborð 3 (EMCP 3)
Skýringarmynd 1 | g01184041 |
Hnappurinn fyrir ljósaprófun er efst til hægri á rafstýrðu stjórneiningunni. Haldið inni hnappinum fyrir ljósaprófun til þess að prófa öll gaumljósin og skilaboðaskjáinn. Kveikt skal vera á gaumljósunum og skilaboðaskjánum þangað til hnappinum er sleppt. Ef einhverjir íhlutir standast ekki þetta próf skal skipta út biluðu íhlutunum áður en aflvélin er ræst.
Ljósarofi stjórnborðsins ætti að kveikja á stjórnborðsljósunum. Kveikið og slökkvið á ljósarofa stjórnborðs til að tryggja að þau virki sem skyldi.
Skýringarmynd 2 | g01101388 |
Prófið LED gaumljósin og flautuna þegar gagnatengingin er virk og þegar gagnatengingin er óvirk. Hnappurinn fyrir ljósaprófun er nálægt efri hluta samskiptaborðsins. Prófið bæði flautuna og gaumljósin með því að halda inni hnappinum fyrir ljósaprófun. Skiptið um bilaða íhluti áður en aflvélin er ræst.