Leitið eftir eftirfarandi í millikælinum: skemmdum fönum, tæringu, óhreinindum, smurfeiti, skordýrum, laufum, olíu og öðrum óhreinindum. Hreinsið millikælinn, ef með þarf.
Notið sömu aðferðir við hreinsun loftmillikæla og notaðar eru við hreinsun vatnskassa.
Persónuleg meiðsl geta hlotist af loftþrýstingi. Persónuleg meiðsl geta hlotist af ef réttri aðferð er ekki fylgt. Notið andlitshlíf og hlífðarföt þegar háþrýst loft er notað. Hámarksþrýstingur við stút verður að vera minni en |
Best er að nota háþrýstiloft til að fjarlægja laus óhreinindi. Blásið í öfuga átt við loftstreymi viftunnar. Haldið stútnum um það bil
Einnig má nota háþrýstivatn við þrif. Hámarksvatnsþrýstingur við hreinsun verður að vera undir
Notið fituhreinsi og gufu til að fjarlægja olíu og feiti. Þrífið báðar hliðar kjarnans. Skolið kjarnann með hreinsiefni og heitu vatni. Þrífið kjarnann vandlega með hreinu vatni.
Þegar þrifum er lokið skal gangsetja vélina og auka snúningshraða hennar í háan lausagang. Slíkt er gagnlegt við að fjarlægja óhreinindi og til að þurrka kjarnann. Drepið á aflvélinni. Notið vasaljós til að lýsa bak við kjarnann til að ganga úr skugga um að hann sér hreinn. Þrífið aftur, ef með þarf.
Athugið hvort blöðin séu skemmd. Hægt er að rétta beygluð blöð með “greiðu”.
Athugið Sérstaklega er mælt með lekaprófun þegar gert er við hluta millikæliskerfisins eða þeim skipt út.
Kannið ástand eftirfarandi atriða: suður, festingar, loftlagnir, tengingar, klemmur og þétti. Gerið við, ef með þarf.
Nánari upplýsingar um þrif og skoðanir er að finna í Special Publication, SEBD0518, "Know Your Cooling System" (sérrit um kælikerfið).