Uppgefið hljóðþrýstingsstig hjá stjórnanda er 69 dB(A) þegar stuðst er við "ISO 6396: 2008" til að mæla gildi fyrir lokað stýrishús. Mælingin fór fram við 70% af hámarkshraða kæliviftu. Hljóðstig getur verið breytilegt við mismunandi snúningshraða kæliviftu vélar. Mælingin var gerð með lokaðar dyr og glugga í stýrishúsi. Stýrishúsið var rétt sett á og hafði fengið rétt viðhald.
Þörf gæti verið á heyrnarhlífum þegar unnið er á vélinni með stýrishúsið opið um lengri tíma eða í háværu umhverfi. Þörf gæti verið á heyrnarhlífum þegar unnið er á vélinni með stýrishúsi sem ekki hefur fengið rétt viðhald, eða með dyr og glugga opna í lengri tíma eða í háværu umhverfi.
Uppgefið ytra hljóðaflsstig er 101 dB(A) þegar gildið er mælt í samræmi við prófunarferli og aðstæður samkvæmt "ISO 6395:2008". Mælingin fór fram við 70% af hámarkshraða kæliviftu. Hljóðstig getur verið breytilegt við mismunandi snúningshraða kæliviftu vélar.
Uppgefið hljóðþrýstingsstig hjá stjórnanda er 69 dB(A) þegar stuðst er við "ISO 6396: 2008" til að mæla gildi fyrir lokað stýrishús. Mælingin fór fram við 70% af hámarkshraða kæliviftu. Hljóðstig getur verið breytilegt við mismunandi snúningshraða kæliviftu vélar. Mælingin var gerð með lokaðar dyr og glugga í stýrishúsi. Stýrishúsið var rétt sett á og hafði fengið rétt viðhald.
"Tilskipun Evrópusambandsins um líkamleg áhrif (titring) 2002/44/EB"
Titringsgögn fyrir gröfu á beltum
Upplýsingar varðandi titringsstig fyrir hönd/handlegg
Þegar vélin er notuð við tilætluð verk er titringur á hendi/handlegg á þessari vél undir 2,5 m/s2.
Upplýsingar varðandi titringsstig fyrir allan líkamann
Í þessum kafla eru veittar upplýsingar um titring og aðferð til að áætla titringsstig fyrir gröfur á beltum.
Hægt er að áætla titringsstig með upplýsingum í töflu 1 til að reikna út dagleg titringsáhrif. Hægt er að nota einfalt mat á notkun vinnuvélarinnar. Notið meðaltitring, sem mat á titringi, fyrir dæmigerða notkun. Reyndur stjórnandi og slétt yfirborð: Dragið umhverfisþættina frá meðaltitringsstigi til að fá fram áætlaðan titring. Krefjandi notkun og mjög óslétt yfirborð: Bætið umhverfisþáttunum við meðaltitringsstigið til að fá fram áætlaðan titring.
"ISO viðmiðunartafla A - Jafngildi titringsstigs á allan líkamann fyrir jarðvinnutæki." | ||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Gerð vinnuvélar | Dæmigerð notkun vinnuvélar | Titringsstig(m/s2) | Aðstæðubreytur(m/s2) | |||||
X ás | Y ás | Z ás | X ás | Y ás | Z ás | |||
Grafa á beltum | gröftur | 0,44 | 0,27 | 0,30 | 0,24 | 0,16 | 0,17 | |
notkun með vökvafleyg | 0,53 | 0,31 | 0,55 | 0,30 | 0,18 | 0,28 | ||
notkun í námu | 0,65 | 0,42 | 0,61 | 0,21 | 0,15 | 0,32 | ||
flutningur | 0,48 | 0,32 | 0,79 | 0,19 | 0,20 | 0,23 |
AthugiĆ° Sjá "ISO/TR 25398 Mechanical Vibration - Guideline for the assessment of exposure to whole body vibration of ride on operated earthmoving machines (Vélrænn titringur - leiðbeiningar um mat á áhrifum titrings á allan líkamann við notkun jarðvinnutækja)" varðandi frekari upplýsingar.
Leiðbeiningar til að minnka titringsstig á jarðvinnutækjum
Margvíslegar breytur geta haft áhrif á titringsstig svo sem: þjálfun, hátterni, aðstæður og álag á stjórnanda vinnuvélar, skipulag, undirbúningur, umhverfi, veður og efni á vinnusvæði, gerð vinnuvélar, gæði sætis, gæði fjöðrunar, festingar og ástand búnaðar.
Stillið vinnuvélina rétt. Haldið vinnuvélinni rétt við. Stjórnið vinnuvélinni mjúklega. Viðhaldið ástandi landsvæðisins. Eftirfarandi leiðbeiningar geta gagnast við að draga úr titringi á allan líkamann:
- Notið rétta gerð og stærð af vinnuvél, búnaði og tengitækjum.
- Haldið vinnuvélum við samkvæmt tilmælum framleiðanda: þrýstingur hjólbarða, hemlakerfi og stýrisbúnaður, stjórntæki, vökvakerfi og liðir.
- Haldið yfirborði vinnusvæðis í góðu ástandi með því að framkvæma eftirtalin verk: fjarlægja stóra steina eða hindranir, fylla skurði og holur, leggja til vélar og skipuleggja tíma til að viðhalda aðstæðum á svæðinu.
- Haldið sæti við og stillið það með því að gera eftirfarandi: stilla sæti og fjöðrun í samræmi við þyngd og stærð stjórnanda, skoða og viðhalda fjöðrun sætis og stillingarbúnaði.
- Framkvæmið eftirfarandi aðgerðir mjúklega: stýra, hemla, gefa inn og skipta um gíra.
- Færið tengitæki mjúklega.
- Aðlagið hraða vélarinnar og ökuleið til að lágmarka titringsstig með því að gera eftirfarandi: akið umhverfis hindranir og gróf svæði, dragið úr hraða þegar nauðsynlegt er að fara yfir gróft svæði.
- Dragið úr titringi í löngum vinnulotum eða í lengri akstri með því að gera eftirfarandi: notið vélar sem eru búnar fjöðrunarkerfi, ef akstursstýringarkerfi er ekki til staðar, dragið úr hraða til að komast hjá hoppi og flytjið vélina á milli vinnustaða á vagni.
- Skert þægindi stjórnanda vinnuvélarinnar geta orsakast af öðrum áhættuþáttum. Eftirfarandi leiðbeiningar geta reynst vel til að auka þægindi stjórnanda: stillið sætið og stjórntæki til að ná fram góðri stellingu, stillið spegla til að lágmarka snúna stellingu, takið ykkur hvíld til að draga úr löngum setum, varist að hoppa úr stýrishúsinu, dragið úr endurtekningum á því að meðhöndla og lyfta hlassi, lágmarkið högg og álag í íþróttum og í frítíma.
Upplýsingar um titring og aðferðir við útreikninga byggjast á "ISO/TR 25398 Mechanical Vibration - Guideline for the assessment of exposure to whole body vibration of ride on operated earthmoving machines (Vélrænn titringur - leiðbeiningar um mat á áhrifum titrings á allan líkamann við notkun jarðvinnutækja)". Samræmd gögn eru mæld af alþjóðlegum stofnunum, samtökum og framleiðendum.
Þetta skjal gefur upplýsingar um mat á heildartitringsáhrifum á líkama við notkun jarðvinnslutækja. Aðferðin er byggð á mældum titringi við raunverulegar vinnuaðstæður á öllum vinnuvélum.
Athugið upphaflega tilskipun. Þetta skjal dregur saman innihald laga sem eiga við. Þessu skjali er ekki ætlað að koma í stað upphaflegra skjala. Aðrir hlutar þessara skjala eru byggðir á upplýsingum frá United Kingdom Health and Safety Executive.
Sjá Viðauka notkunar- og viðhaldshandbókar, SEBU8257 til að fá nánari upplýsingar um titring.
Hafið samband við Cat umboðið varðandi frekari upplýsingar um búnað vélar sem dregur úr titringsstigi. Hafið samráð við söluaðila Cat varðandi örugga notkun vélarinnar.
Farið á eftirfarandi vefsvæði til að finna söluaðila á þínu svæði:
Caterpillar Inc.www.cat.com